top of page

Námskeið byrjar aftur  29.ágúst 2023

Stoðkerfisjóga 

Tímarnir eru 2x í viku á þriðjudögum og fimmtudögum fyrir hádegi-  kl 10:00-11:10  

 Námskeiðið er 4 vikur hvert en er alltaf gagnandi og hægt er að hoppa inn í það ef það er laust pláss og taka sínar 4.vikur því nú fer efnið fram á netinu- 

A.T.H -Þeir sem eru í tímum á netinu eru í beinni með kennaranum og þeir ráða hvort þeir vilja nota vefmyndavél eða ekki og taka þannig fullan þátt í tímunum-en með vefmyndavélinni þá getur kennarinn aðstoðað betur nemendur í tímum.(Það er ekki skylda) 

  Einn hringur eru 4 vikur / 8 Skipti .

Nokkrara áskriftaleiðir eru í boði

Tímarnir á netinu henta einnig þeim sem ekki komast á morgnanna kl 10:00  -því hver tími geymist í viku og hefur þú fullan aðgang að tímanum þínum ef þú gast ekki verið með í rauntíma eða mistir af honum.

Það er einnig hægt  að kaupa bara aðgang að Video möppu, en þar færð þú aðgang af StoðkerfisJóga tímum sem eru raðaðir eftir stigi (Byrjandi-Millistig-Framhald) og einnig eftir hvaða líkamspart þú ert að vinna með í tímanum (Fætur-Hendur-Bak-Brjóskassi-Háls-Tær-Fingur) og einnig (Efripartur- Neðripartur) Svo þú getur leitað eftir því sem hentar þér þann dag sem þú vilt iðka.

   Einnig er hægt að kaupa Áskrift og þá færð þú aðgang að öllum videoefnum og tímum- Styrktaræfingar-djúptegjur-djúprúlluæfingar- með ítarlegri kennslu til að ná sem besta árangri.

Nokkrara áskriftaleiðir eru í boði
þú getur skuldbundið þið í  áskrift í allt að 1 mánuð,6 mánuði eða 12 mánuði. 

 
Women Practicing Yoga

Tímarnir

Hver tími byrjar á að jaðtengja sig og koma sér inn í umhverfið sitt og draga athygglina að sér,

því það er mikilvægt er að vera meðvitaður í líkamanum þegar við stundum Stoðkerfisjóga. Við vinnum markvist að hverjum líkamsparti fyrir sig í tímum ,til að ná sem bestum árangri,  Í tímunum eru gerðar léttar og styrkjandi æfingar og lærir að tengja öndun við hreyfingar,samhæfa öndun og hreyfingu.  Notað er yoga props (kubba,bönd,nuddrúllu,bolta og stól) til að aðstoða líkaman sem best svo þú getir aðlagað stöðurnar sem best að þér. Í tímunum eru gerðar góðar tegju æfingar til að losa um stífleikann í liðum og vöðvum,léttar styrktar æfingar til að virkja  innstu vöðva líkamans ,nuddum með mjúkri rúllu/bolta til að losa um fasíuna og mykja þreitta. Síðast en ekki síst þá lærir að hlusta á líkama þinn hverju sinni og sýna þér myldi. Mikið Hver tími endar á djúpri og endurnærandi slökun.

Tímarnir eru settir upp ca svona : 

  •  5- 10 mínútur jarðtengja sig/öndun

  • 10 mínútur mjúk upphitun/tegjur

  • 10-15 mínútur æfingar eftir líkamsparti

  • 10-15 mínútur tegjur/rúlla

  • 20 mínútur Slökun 

A.T.H Stoðkerfisjóga tímar eru ekki hefðbundir jógatímar

Hugmyndafræði tímanna

Þegar stoðkerfið er komið í klípur þá er oft ekki gott að vera í erfiðis tímum sem innhalda mikla snerpu, eins og spinning,bodypump,lyftingar eða þessháttar. Allt eru það góðir tímar en ekki fyrir líkama sem er jafnvel að stíga sín fyrstu skref eftir langt frí frá hreyfingu, jafnvel eftir  meiðsl á líkamanum eða jafnvel andlegt burnout.

 Þegar stoðkerfið er komið í lás og taugakerfið jafnvel á núlli þá þarf að fara varlega af stað á ný. Einhver hreyfing getur jafnvel verið kvalafull og þá þarf að vinna sérstaklega með það fyrst áður en haldið er af stað í æfingar sem innihalda snerpu.

 Flestir leita þó í að fara í snerpu æfingar og  athafast í erfiðum styrktar æfingum og fá janvel lítið sem ekkert aðstoð hvernig er best að passa upp á sig, fá jafnvel ekki dómgreind kennarans að passa upp á sig eða personulega nálgun.

Það skaða jafnvel stoðkerfið meira ,veldur meiri verkjum og jafnvel ennþá erfiðara að byrja upp á nýtt.

Verkir í stoðkerfi líkamans getur oft leitt af sér aðra kvilla eins og streitu, ofþreytu, minnisleysi, svefnvandamál ,stífleika og einbeitingarskort.

 Í Stoðkerfisjóga eru kenndar góðar æfingar til þess að draga úr áhrifum verkja í stoðkerfinu og ná því betur að fá slökun í líkamann og auka bónus er að hann styrkist í leiðinni.  Með því að skoða getu líkamans hverju sinni í æfingum lærir þú að hlusta á líkama þinn -hver er getan þín í dag og sýna honum mildi.

 

Stoðkerfisjóga námskeiðin hafa hlotið vinsælda og er að bera mikinn árangur á iðkendum bæði í tímum og eftir námskeiðið.

Þessir tímar eru hannaðir fyrir alla og ekki síst fyrir þá  sem vilja fá að kynnast sér og getu sinni á ný.

*Allir sem eru á námskeiðinu fá frían aðgang í yoga Nidra hvíld sem er í hljóbók.

*Þetta námskeið er einnig á skrá hjá Virk og þeir sem eru í endurhæfinugu geta sótt um styrk hjá þeim.

Yoga Mats
bottom of page